fjallað um gagnvirka margmiðlun til náms og kennslu í fræðilegu ljósi
stutt viðhorf til gagnvirkni og margmiðlunar við nám og kennslu í skólastarfi fræðilegum rökum
metið margmiðlunarefni á skipulegan og gagnrýninn hátt
lýst hönnunarferlum að baki námsefni með margmiðlunarsniði
sýnt tök á ýmsum aðgengilegum verkfærum til margmiðlunar
bent á leiðir til að fella vinnu með slík verkfæri að skólastarfi
skipulagt, útfært og metið efnisgerð nemenda í leik- og grunnskóla
byggt á nokkurri reynslu af gerð margmiðlunarefnis.
Inntak, viðfangsefni og vinnulag:
Fjallað verður um gagnvirka margmiðlun á fræðilegum grunni, einkum með tilliti til náms og kennslu. Farið verður yfir undirstöðuatriði námsefnisgerðar, handritsgerð, hönnunarferli og notendaprófanir. Sérstakri athygli verður beint að efnisbyggingu, samspili miðla, yfirbragði efnis, gagnvirkni og notendaskilum. Kynnt verða ýmis verkfæri og hugbúnaður til hljóðvinnslu, myndvinnslu og margmiðlunar. Nemendur móta hugmyndir um vinnulag og notkun verkfæra til margmiðlunar í skólastarfi. Auk smærri einstaklingsverkefna vinna nemendur einir eða fleiri saman að stutri mynd og gerð margmiðlunarefnis af einföldum toga, gjarnan með stærri verk í huga.
Námsmat
Nemendur hafa töluvert val um verkefni. Nemendur bregðast við völdum verkum annarra nemenda og ræða viðfangsefni námskeiðsins. Kennari veitir skriflega umsögn um verkefnin og metur framlag nemenda til einkunnar.
Lesefni
Valið efni um gagnvirka margmiðlun, efnisgerð og samþættingu námsgreina í skólastarfi, stuðning skólasafna og smiðjur í skólum.
Margmiðlun til náms og kennslu
Braut/námsleið/kjörsvið
Framhaldsdeild, Uppeldis- og menntunarfræði – upplýsingatækni og miðlun[1]
Tegund námskeiðs (grunnnámskeið, skyldunámskeið, valnámskeið)
Valnámskeið
Misseri: Vorönn
Stærð námskeiðs í einingum
5 (10 ECTS)
Hámarksfjöldi nemenda
Forkröfur
Námskeiðslýsing
Þekkingar- og færnimarkmið:
Nemendur geti
Inntak, viðfangsefni og vinnulag:
Fjallað verður um gagnvirka margmiðlun á fræðilegum grunni, einkum með tilliti til náms og kennslu. Farið verður yfir undirstöðuatriði námsefnisgerðar, handritsgerð, hönnunarferli og notendaprófanir. Sérstakri athygli verður beint að efnisbyggingu, samspili miðla, yfirbragði efnis, gagnvirkni og notendaskilum. Kynnt verða ýmis verkfæri og hugbúnaður til hljóðvinnslu, myndvinnslu og margmiðlunar. Nemendur móta hugmyndir um vinnulag og notkun verkfæra til margmiðlunar í skólastarfi. Auk smærri einstaklingsverkefna vinna nemendur einir eða fleiri saman að stutri mynd og gerð margmiðlunarefnis af einföldum toga, gjarnan með stærri verk í huga.
Námsmat
Nemendur hafa töluvert val um verkefni. Nemendur bregðast við völdum verkum annarra nemenda og ræða viðfangsefni námskeiðsins. Kennari veitir skriflega umsögn um verkefnin og metur framlag nemenda til einkunnar.
Lesefni
Valið efni um gagnvirka margmiðlun, efnisgerð og samþættingu námsgreina í skólastarfi, stuðning skólasafna og smiðjur í skólum.
[1] Ath. áður nefnt tölvu- og upplýsingatækni